Baráttan gegn hinum "illu" öflum

Margt hefur verið skrifað undanfarna daga um þetta mál Smáís gegn netverjum.  Eins og svo oft áður, eru þessi skrif misgáfuleg.  Langar mig að leggja einnig örfá orð í belg, bæði um þetta mál sem og mál Smáís gegn DC liðum, frá september 2004.

Það er nefnilega alveg merkilegt hvað margir geta verið forpokaðir í umræðu um í raun jafn einfaldan hlut og niðurhal og efnisveitur.  Í báðar áttir.

Margir tala um að skera upp herör gegn innlendum framleiðendum og söluaðilum, þar sem þeir eru að standa á rétti sínum gegn þjófnaði á hugverkum sínum, með því að hætta að versla við þá.  Aðrir telja að ekki sé nógu hart tekið á netverjum. 

Ég vil taka það fram í byrjun, að ég er einn af sakborningunum í DC málinu svokallaða, þannig að ég veit hvernig er að sitja gagnvart þessum ákærum.

Það sem vantar í þessa umræðu, þetta sjónarhorn sem ekki er nógu mikið skoðað, er hvernig allir aðilar geta komið að borðinu, rætt eins og fullorðið fólk og skilið svo sáttir.

Eins og svo oft áður, gera "fullorðnir" sér ekki alltaf grein fyrir hvað unglingarnir eru að taka sér fyrir hendur og áður en varir eru þeir (unglingarnir) farnir að standa að meintum ólöglegum aðgerðum.  En það án þess að gera sér fullkomlega grein fyrir því.

Skoðum aðeins hvað fólk er að gera með þessu niðurhali á efni:

Meirihlutinn er að sækja sér nýjar plötur eða bíómyndir, tölvuforrit og tölvuleiki til afnota til afþreyingar.  Án þess að greiða fyrir það.  Já, ég veit það, en af hverju?  Vegna þess að miðillinn (internetið) býður upp á það.  Ok, gott og vel, þá er dreifingin komin, en hvað með tapið, það tapast "milljarðar á milljarða ofan".  Kærum þessa aðila, lokum efnisveitunum, förum í hæpnar, kostnaðarsamar aðgerðir til að brjóta niður þessa menn, sem stuðla að glæpum gegn mannkyninu og stuðla að öryggisbrotum gegn almannahagsmunum ...... Nei, hættu nú alveg.

Við predikum endalaust að við viljum ekki lifa í lögregluríki.  Að boð og bönn megi ekki ná út fyrir allt, heldur að hægt sé að ná til fólks, með því að höfða til skynseminnar.  Frábært.

Í staðinn fyrir að ganga gegn þessum "bólugröfnu unglingum, sem sitja fyrir framan tölvuna með bremsuför í brókinni, að niðurhala efni í skjóli nætur (Fengið af vef SmáÍs fyrir breytingu á texta)" hvernig væri að átta sig á miðlinum, tækninni og frjósemi netverja, og fá þá í samstarf með sér.

Staður múlasni færir sig ekki úr stað þó svo að hann sé laminn, hann verður bara ennþá staðari.  Þó svo að netverjar séu kærðir og vefsíðum lokað birtast alltaf nýjar vefsíður til að halda áfram hinni meintu ólöglegri starfsemi.

Hvað með að hafa efnisveitur sem bjóða uppá þessar myndir í samvinnu ( Já Snæbjörn, samvinnu.  Þ.e. þegar menn tala saman, maður á mann, mano e mano ) við rétthafasamtök til að allir fái eitthvað fyrir sinn snúð.  Eða setja upp eigin netveitur ( sbr. tónlist.is ), sem rukka fyrir efnið.  Það er nefnilega ansi mikið sem er keypt af þessum efnisveitum, ef takmörkunin er engin.

Eftir að Amazon fór að selja sjónvarpsþætti fyrir $3.99 stykkið hef ég hætt að sækja þá á torrenta, því þeir koma svo fljótt þangað inn.  Þetta snýst nefnilega fyrst og fremst um að geta horft á efnið og nálgast það þegar ÉG vil, ekki þegar sjónvarpsstöðvarnar eða myndbandaleigurnar taka efnið til sýninga.

Annað, að jafnvel þó svo að í mínu tilfelli hafi ég verði tekinn með einhverjar þúsundir bíómynda og sjónvarpsþætti sem ég "dreifði" á netinu, er ekki þar með sagt að hægt sé að setja samansemmerki á milli fjölda mynda og taps á sölu.  Fyrir mér var þetta hobbý, mér fannst gaman að segja í samtölum að ég ætti svo og svo margar bíómyndir.  En horfði ég nokkurn tíma á þær ?  Nei, ég get ekki sagt það.  Og keypti ég einhverntíma þær myndir sem ég hafði niðurhalað ?  Já, ég á yfir 400 tilta sem ég hef keypt.  Hvar er þá tapið ?  Í myndum á harða diskinum mínum sem ég hef aldrei horft á og mun aldrei horfa á ?  Ég er ekki að segja að allir geri eins og ég, en gefum okkur að 25% netverja geri eins og ég, bara svona til gamans.  Þá er nú aldeilis búið að rífa í þetta meinta tap.

Tölur frá Hagstofunni gefa til kynna að allir þeir geirar sem meint tap snýst um, hafa í raun verið að auka hagnað og sölu, ár frá ári, nema einn, myndbandaleigurnar.  En snýst þeirra tap, þeirra vandkvæði ekki meira að breyttum miðlum, fleiri sjónvarpsstöðum, og þeirri staðreynd að þegar kostar 600kr að leigja mynd og 1800kr. að kaupa hana, að fleiri kaupa núna myndirnar sýnar heldur en að fara út á leigu og leigja hana ? 

Það er nóg komið að sandkassaleik.  Verðum fullorðin, setjumst niður og tölum saman.  Ég skal setjast að borði með Sveinbirni, Magga Kjartans og öllum þessum aðilum, útskýra hvað við erum að gera og finna lausn á vandamálinu, án þess að rífa upp lögmenn á alla fingur og kæra "bólugröfnu bremsuförin".  Forvarnastarf þarf í þessu máli eins og öðrum, og forvarnir eru ekki bara boð og bönn, heldur líka fræðsla. 


mbl.is Hart barist um höfundarréttinn á torrent-síðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bara Steini

Loksins loksins kemur vitrænn punktur i þessa svokölluðu umræðu...

Maður bara verður að linka á þig ef maður má := 

Bara Steini, 27.11.2007 kl. 12:10

2 Smámynd: kiza

Þér eruð sem ferskur andvari í þessa einum of einhliða umræðu! :) 

Ég er 100% sammála þér að það hlýtur að vera hægt að finna þroskaðri lausn á þessu máli frekar en þetta endalausa skítkast aðila á milli. 

kiza, 27.11.2007 kl. 12:13

3 Smámynd: Guffi Árna

svakalega getur þú ruglað maður,,var orðinn svo leiður á þessu bulli í þér og samt erum við núna bloggvinir það er gaman,,sakna þin og,,væri nú gott að fá knús frá ollanum sínum núna,,komdu í sleik kveðja Guffi

Guffi Árna, 27.11.2007 kl. 15:14

4 identicon

ÉG borgaði 650 fyrir ekkert sértaka mynd af Bonusleigu á Akureyri

Kristján B (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 21:56

5 Smámynd: Kristján Gunnar Guðmundsson

Heyrði þetta viðtal fyrir skömmu síðan það útskýrir sumt..  

 t.d. að Hollywood liggur á Internetréttinum og neitar að bjóða uppá hann þrátt fyrir þrýsting, sem þýðir að Hollywood er ekki að verða við eftirspurn netverja og því sé kannski ekki nema skiljanlegt að netverjar leiti annað til að svala þorstanum, þetta svo skapar svo óumflýjanlega breyttar neysluvenjur sem erfitt eða ómögulegt verður að venja netverja af, og má það skrifa uppá meðvitaða áhættu af upptöku stafrænnar tækni hjá Afþreyingariðnaðinum, því honum má vera fulljóst hvaða afleiðingar það hefur í för með sér að gefa efni út á geisladiskum.



  Útvarpsmaður: Já, en ég meina sko nú er það þannig að mjög margir sem ég tala við segja að ég væri alveg tilbúinn að borga fyrir download ef það væri í boði, af því að þú downloadar þá bara mynd þú veist það er ekkert meira með það, það er bara myndin

Snæbjörn:     Já það er svoldið Hollywood að kenna, það er hérna, þessi svokallaði internetréttur, stúdíóin hafa bara ekkert verið að bjóða uppá hann. Og ég veit að rétthafar hérna heima myndu alveg þvílíkt vilja fá að bjóða uppá þetta á internetinu, en þetta er bara ekki í boði

Útvarpsmaður: Já það er svoleiðis?

Snæbjörn:     Jaaá

Útvarpsmaður: Hvernig er hérna ég meina er ekkert sem að, við þurfum bara að hlíða þeirra ákvörðunum og svo framvegis?

Snæbjörn:     eins og er, það er verið að beita miklum þrýstingi að fá þetta veit ég, alveg sérstaklega hérna í Evrópu og í Norður Evrópu eins og Skandinavíu

Útvarpsmaður: En ég meina manni finnst, fyrirgefðu að ég gríp fram í fyrir þér, að þeir vera bara að berjast svoldið á móti eitthverju sem er óumflýjanlegt, ég meina.. Þetta er bara!

Snæbjörn:     Ég held að það sé alveg mikið til í því hjá þér að þetta sé alveg óumflýjanlegt og að þetta verður..

Útvarpsmaður: Já?

Snæbjörn:     Það eru að koma síður í skandinavíu sem eru að selja efni á hérna netinu en það er ekki verið að tala um stúdíó efni sem er náttúrulega það sem flestir sækjast eftir svona alveg Hollywood hittara og allt svoleiðis

Viðtalið er svo allt hérna http://fm957.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=27569

Kristján Gunnar Guðmundsson, 28.11.2007 kl. 05:32

6 Smámynd: Hilmar Kári Hallbjörnsson

Mikið einstaklega er nú hann Snæbjörn vel máli farinn .... hérna, sko, eða, kannski .... ekki

Hilmar Kári Hallbjörnsson, 28.11.2007 kl. 10:12

7 identicon

Samkvæmt þessu viðtali þá virkar Snæbjörn ekki eins vitlaus og margir vilja halda fram og hann virkaði léttari á mann í þessu viðtali heldur en í öllum sjónvarpsviðtölum. Ég hef sjálfu sér ekki neit á móti manninum sem slíkum þó ég efist stundum um aðferðarfræðinna sem er notuð við að stöðva ´"Ólöglegt niður/upphal". En er ekki bara um að gera fyrir SMAIS að taka á skarið og bjóða Íslenkt efni til niðurhals gegn sangærni greiðslu.  En Hollywood efnið mæti þá bíða þangað til MPAA rankar við sér.

Kristjan B (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 14:11

8 identicon

Samkvæmt þessu viðtali þá virkar Snæbjörn ekki eins vitlaus og margir vilja halda fram og hann virkaði léttari á mann í þessu viðtali heldur en í öllum sjónvarpsviðtölum. Ég hef sjálfu sér ekki neit á móti manninum sem slíkum þó ég efist stundum um aðferðarfræðinna sem er notuð við að stöðva ´"Ólöglegt niður/upphal". En er ekki bara um að gera fyrir SMAIS að taka á skarið og bjóða Íslenkt efni til niðurhals gegn sangærni greiðslu.  En Hollywood efnið mæti þá bíða þangað til MPAA rankar við sér.

Kristjan B (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 17:44

9 identicon

Hvernig ferðu að því að kaupa nýju þættina af amazon þegar ekki er hægt að kaupa þá nema í BNA ( þeir kosta reyndar 1.99 stykkið.)

Jóninn (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband